©1996-2023 Visa. Allur réttur er áskilinn.
Visa er heimilt að breyta þessum reglum hvenær sem er með því að uppfæra síðuna. Notendur þessa vefseturs („vefurinn“) eru bundnir slíkum breytingum og eru því hvattir til að skoða þessa síðu öðru hverju til að kynna sér reglurnar.
Visa International Service Association heldur úti vefnum www.Visa.com og tengdum vefsíðum þér til upplýsingar, afþreyingar og ánægju. Þér er velkomið að skoða vef Visa, hlaða niður efni af honum og nota hann með öðrum hætti. Hafðu þó hugfast að aðgangur þinn að vefnum lýtur eftirfarandi reglum og gildandi lögum. Með því að fara inn á og nota vef Visa samþykkir þú reglurnar án takmörkunar eða fyrirvara og viðurkennir að þær gangi framar öllum öðrum samningum eða samkomulagi sem þú kannt að hafa gert við Visa, að því leyti sem ákvæði stangast á.Samþykkir þú ekki þessar reglur skalt þú vinsamlegast ekki skoða eða nota vef Visa.
Vinsamlegast athugið einnig að um vef Visa U.S.A. gildir sérstök persónuverndarstefna. Þegar þú ferð inn á vefi fyrir önnur lönd eða svæði, eða aðra vefi sem eru í eigu eða reknir af Visa U.S.A., skalt þú lesa persónuverndarstefnu hvers vefs fyrir sig, vegna þess að skilmálar geta verið mismunandi.