


Auðga líf leikmanna með því að búa til frumlega og ógleymanlega leikjaupplifun
Leikjaheimar Ubisoft, allt frá Assassin’s Creed til fjölskylduleikja Just Dance, hafa verið milljónum leikmanna innblástur síðan 1986. Ubisoft talar fyrir sköpunargleði, eftirminnilegum ævintýrum í lifandi heimum og glaðlegum samfélögum. Þetta samstarf táknar sameiningu tveggja leiðandi afla og framúrskarandi frumkvöðla.
Kafaðu dýpra í heim Ubisoft...

Assassin’s Creed Shadows
Lifðu þig inn í samanfléttaðar sögur Naoe, shinobi launmorðingjans færa frá Iga-héraði, og Yasuke, afríska samúræjans öfluga og goðsagnakennda sem sviðsettar eru seint á ólgusama Sengoku tímabilinu. Þetta merkilega tvíeyki uppgötvar sameiginleg örlög og upphaf nýrra tíma fyrir Japan.

Just Dance
Stökktu inn í sviðsljósið með Just Dance, fullkomnum dansidjammleik sem hefur heillað milljónir manna um allan heim. Danshönnunin er vandlega útfærð til að leyfa öllum, byrjendum sem atvinnumönnum, að fá sér snúning og skemmta sér konunglega. Spilunarlistinn er gríðarstór, öll heitustu lögin og sígildir slagarar svo að fjölskyldan og vinir geta öll tekið þátt í gleðskapnum.

Ubisoft+
Njóttu þess að spila þekkta leiki úr vinsælum leikjaseríum í úrvalsútgáfu. Vertu með á Ubisoft+ og spilaðu nýja titla strax frá fyrsta útgáfudegi og fáðu aðgang að sívaxandi 100+ leikjasafni okkar. Fáðu aðgang að viðbótum, árskortum, skinnum og jafnvel enn meira efni þegar það birtist á Ubisoft+ Premium.
Ævintýri
Ævintýraleikir Ubisoft sökkva leikmönnum niður í gagnvirka sögu með könnunarferðum og þrautalausnum. Þeir sækja innblástur í frásagnarmiðaða miðla eins og bókmenntir og kvikmyndir

